Matseðlar
Kaffi/funda veitingar
6 matseðlar

Kaffi snittuhlaðborð
Lágmark 40 gestir
Viðmiðunarverð 3.990 kr/mann
Girnilegar kaffisnittur með fjölbreyttu áleggi, meðal annars roastbeef og hangikjöti. Klassískar veitingar sem henta jafnt í kaffiboðið, á fundinn eða í stærri veislur.

Hefðbundið kaffihlaðborð
Lágmark 40 gestir
Viðmiðunarverð 4.990 kr/mann
Hefðbundið kaffihlaðborð með góðri blöndu af ljúffengum brauðréttum og sætum kræsingum. Tilvalið fyrir veislur og notalegar samverustundir.

Þjóðlegt kaffihlaðborð
Viðmiðunarverð 3.990 kr/mann
Þjóðlegt kaffihlaðborð með klassískum íslenskum kræsingum. Kokteilsnittur og flatkökur með hangikjöti ásamt kleinum, pönnukökum með sykri og skúffuköku. Notaleg veisla sem hentar vel þegar fólk kemur saman yfir góðum kaffibolla.

Morgunverðarhlaðborð
Lágmark 60 gestir
Viðmiðunarverð 4.490 kr/mann
Ríkulegt morgunverðarhlaðborð með nýbökuðu brauði, croissant, fjölbreyttu áleggi og reyktum laxi. Heitir morgunverðarréttir, skyr með granóla og berjum, ferskir ávextir og sætt bakkelsi gera morgunstundina enn betri.

Léttur morgunfundur
Lágmark 60 gestir
Viðmiðunarverð 2.490 kr/mann
Létt og gómsæt byrjun á fundardeginum með mini croissant, skyri með granóla og berjum, kanilsnúði og ferskum ávöxtum. Kaffi, te og vatn fylgja með.

Klassískur morgunfundur
Lágmark 60 gestir
Viðmiðunarverð 3.490 kr/mann
Góðar morgunveitingar með rúnstykkjum og fjölbreyttu áleggi, skyri með granóla og berjum, kanilsnúðum, hjónabandssælu og ferskum ávöxtum. Tilvalið fyrir morgunfundinn eða fræðsludaginn.
-2000x2000.jpg)