LUX Veitingar
Um okkur
LUX Veitingar er veisluþjónustufyrirtæki með aðsetur á Urðahvarf 4 , 203 kópavogi. Við erum sérfræðingar í matargerð á staðnum og getum sett upp fulla eldhúsaðstöðu hvar sem er á landinu.
Við LUX
Þar sem maturinn verður upplifun
LUX var stofnað af tveimur ástríðufullum kokkum sem vilja gera gæðamáltíðir aðgengilegar fyrir alla, hvort sem er brúðkaup fyrir 200 manns , 1500 manna árshátíð eða kvöldverður í heimahúsi.
Við eldum á staðnum og komum með allt sem þarf: eldhús, búnað og starfsfólk. Við hugsum út fyrir kassann og sniðum hverja veislu að þörfum viðkomandi.
Gæði, vandvirkni og listrænt handbragð eru grunnstoðir í öllu sem við gerum.

Á bakvið matinn
Eigendurnir

Viktor Örn Andrésson
Kokkur & eigandi
Viktor er einn fremsti matreiðslumaður landsins. Hann var valinn Kokkur ársins á Íslandi 2013, Matreiðslumaður Norðurlanda 2014 og vann bronsverðlaun fyrir Íslands hönd í Bocuse d'Or í Lyon 2017, virtustu matreiðslukeppni heims. Hann hefur eldað í eldhúsum um allt Ísland og Evrópu og kemur með þá nákvæmni og metnað beint inn í hverja veislu LUX.
-900x675.png)
Hinrik Örn Lárusson
Kokkur & eigandi
Hinrik er Kokkur ársins 2024. Hann ólst upp á Hótel Heklu og stóð þar í eldhúsinu frá unga aldri. Hann var tvisvar valinn Nemi ársins, keppti með Kokkalandsliðinu og hefur unnið til fjölda verðlauna erlendis. Árið 2018 stofnaði hann LUX Veitingar ásamt Viktori og kemur með sama keppnismetnað inn í hverja veislu.
Vertu hluti af LUX
Við erum alltaf að leita að góðu fólki
Hefur þú ástríðu fyrir mat og þjónustu? Hafðu samband við okkur.
Sækja um starf
Fylltu út umsóknina og hengdu ferilskrána við. Við lesum allar umsóknir og höfum samband.
